Aldursforseti (Ragnar Arnalds):
Borist hafa bréf um forföll alþingismanna. Hið fyrsta er svohljóðandi:
,,Þar sem ég get ekki sótt þingfundi á næstu mánuðum vegna barnsburðar óska ég eftir því að 1. varaþingmaður Alþb. og óháðra í Reykv., Guðrún Helgadóttir rithöfundur, taki sæti á Alþingi í minn stað.
Bryndís Hlöðversdóttir, 12. þm. Reykv.``
Guðrún Helgadóttir hefur áður tekið sæti á Alþingi á þessu kjörtímabili og er boðin velkomin til starfa á ný.
Þá er hér bréf frá formanni þingflokks Framsfl., svohljóðandi:
,,Þar sem Halldór Ásgrímsson, 1. þm. Austurl., er erlendis í opinberum erindum og getur ekki sótt þingfundi næstu tvær vikur leyfi ég mér með vísun til 2. mgr. 53. gr. laga um þingsköp Alþingis að óska þess að 2. varaþingmaður Framsfl. í Austurl., Kristjana Bergsdóttir kennari, taki sæti á Alþingi í fjarveru hans og forföllum 1. varaþingmanns flokksins í kjördæminu.
Þetta er yður hér með tilkynnt, herra forseti.
Valgerður Sverrisdóttir.``
Enn fremur er hér bréf 1. varaþingmanns Framsfl. í Austurl., Jónasar Hallgrímssonar, svohljóðandi:
,,Þar sem ég verð staddur erlendis á næstunni óska ég eftir að 2. varaþingmaður Framsfl. í Austurl., Kristjana Bergsdóttir, taki sæti Halldórs Ásgrímssonar, 1. þm. kjördæmisins, í minn stað.``
Kristjana Bergsdóttir hefur áður tekið sæti á Alþingi á þessu kjörtímabili og er boðin velkomin til starfa á ný.