Forseti (Ólafur G. Einarsson):
Forseti vill geta þess að samkvæmt samþykkt forsætisnefndar mun héðan í frá verða hætt upplestri í byrjun þingfundar á nöfnum þeirra þingmanna sem hafa fjarvistarleyfi eða hafa boðað forföll vegna veikinda. Fjarvistarskráin mun liggja frammi á skrifstofunni og annars staðar þar sem dagskrá þingfundar er kynnt. Skráin verður enn fremur prentuð í Alþingistíðindum svo sem venja hefur verið til þessa.
Forseti vill jafnframt við þetta tækifæri brýna fyrir þingmönnum að tilkynna skrifstofunni um fjarvistir. Það er mikilvægt við skipulagningu þingstarfanna að hafa nákvæmar upplýsingar um fjarvistir þingmanna og ráðherra.