Forseti (Ólafur G. Einarsson):
Áður en umræðan hefst vill forseti geta þess að samkomulag er um það milli þingflokka að fyrstu ræðumenn, þ.e. talsmenn þingflokkanna, hafi allt að tvöfaldan ræðutíma í fyrri ræðu sinni. Að öðru leyti gilda ákvæði þingskapa um ræðutíma og ræðufjölda og forseti væntir þess að hæstv. fjmrh. stytti líka ræðu sína.