Sturla Böðvarsson (andsvar):
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. fyrir að vekja máls á þessu. Afstaða mín byggir á því sem gert var ráð fyrir að gerðist við breytingar á lögum um fjárreiður ríkisins. Með þeirri löggjöf er alveg skýrt að fjárlagafrv., sem felur í sér lánsfjárlagagerðina og skerðingarákvæði, er allt á verksviði fjárln. Hins vegar tel ég, og get að því leyti tekið undir það sem hv. þm. sagði, að auðvitað verði að gera breytingar vegna þess að verkefni fjárln. muni aukast svo mikið. Um þetta hefur að sjálfsögðu verið rætt en það er á færi hæstv. forseta Alþingis að hafa forgöngu um niðurstöður en að sjálfsögðu verður það að gerast í góðu samkomulagi allra aðila. Ég get upplýst að við hv. formaður fjárln., Jón Kristjánsson, höfum að sjálfsögðu rætt þetta við nefndarmenn og fyrst og fremst forseta Alþingis sem mun hafa forgöngu um þær breytingar sem munu fylgja í kjölfarið.