Sturla Böðvarsson (andsvar):
Hæstv. forseti. Til þess að koma í veg fyrir að nokkur misskilningur myndist vil ég leggja á það mikla áherslu að það gengur auðvitað ekki að dreifa öllum verkum fjárln. eins og gulli um sali þingsins. Auðvitað verður einn aðili aðallega að vinna að meðferð fjárlagafrv. þannig að einhver stjórn sé höfð á þessu en fari ekki allt út um víðan völl og það er auðvitað mjög mikilvægt. Ég vil ekki að öðru leyti segja meira um þetta. Þetta þarf að móta, forseti Alþingis hefur forgöngu um það mál.