Fjárlög 1998

Þriðjudaginn 07. október 1997, kl. 17:37:16 (109)

1997-10-07 17:37:16# 122. lþ. 4.4 fundur 1. mál: #A fjárlög 1998# frv., StB (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 4. fundur

[17:37]

Sturla Böðvarsson (andsvar):

Hæstv. forseti. Aldrei þessu vant þá get ég bara sagt við þennan hv. þm. að gagnvart mér var þetta allt satt og rétt sem þingmaðurinn sagði og ég hef satt að segja engu við það að bæta öðru en því að þakka honum fyrir að taka svo ágætlega undir ræðu mína.