Árni M. Mathiesen:
Herra forseti. Það er enginn halli á Flugstöð Leifs Eiríkssonar og hefur aldrei verið. Þetta er bullandi gróðafyrirtæki. Eigandinn, ríkið, hefur ákveðið að taka peninga út úr fyrirtækinu og nota til annarra verkefna, þ.e. til þess að byggja upp flugvelli allt í kringum landið.