Fjárlög 1998

Miðvikudaginn 08. október 1997, kl. 19:00:20 (197)

1997-10-08 19:00:20# 122. lþ. 5.1 fundur 1. mál: #A fjárlög 1998# frv., JónK (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 5. fundur

[19:00]

Jón Kristjánsson (andsvar):

Herra forseti. Ég mun í stuttu andsvari ekki fara í lagatúlkanir á frv. eða ákvæðum þess í 6. gr. Ég mun beita mér fyrir því að vandlega verði farið yfir þessar greinar og mun auðvitað beita mér fyrir því að þær séu í samræmi við þau lög sem við samþykktum hér á síðasta sumri. En ég ætla ekki að fara í túlkanir á því í stuttu andsvari í þessari umræðu.