Heilbrigðisráðherra (Ingibjörg Pálmadóttir) (andsvar):
Virðulegur forseti. Það eru ekki boðaðar nýjar gjaldtökur í þjónustugjöldum. (Gripið fram í.) Nú vil ég biðja forseta að sjá svo um að ég fái að svara. Ég hef ekki mjög langan tíma til þess. Hv. þm. spyr líka að því hvort 2,6 milljarða vanti inn í heilbrigðiskerfið. Ég get svarað því þannig að það væri mjög vel hægt að nýta 2,6 milljarða í heilbrigðisþjónustuna.
Hv. þm. spurði hvernig ætti að ná 410 millj. kr. lækkun á lyfjakostnaði. Ég fór áðan yfir það og það hefði verið ágætt ef hv. þm. hefði hlustað á það. Hann getur þá lesið það í þingtíðindum. En með auknum útboðum á lyfjum og með svokölluðum samhliða innflutningi getum við náð verulegum árangri varðandi lækkun lyfjakostnaðar. Við höfum þegar náð þeim árangri á þessu ári. En samt er áætluð 7% hækkun í lyfjakostnaði.
Varðandi fæðingarorlof feðra verður jafnt að ganga yfir alla feður. Það sem gengur til ríkisstarfsmanna mun líka ganga yfir á almenna markaðnum.