Svavar Gestsson:
Herra forseti. Ég vil þakka fyrir þessa umræðu og ég vil líka þakka hæstv. menntmrh. fyrir þá yfirlýsingu sem hann gaf um það að ákvörðun stjórnar lánasjóðsins taki ekki gildi. Það er mjög mikilvægt. Og það er mikilvægt að í framhaldi af þessum umræðum, m.a. þessari umræðu hér, verði farið í að endurskoða þessi mál öll, m.a. samspil fjöldatakmarkana og þeirrar kröfu sem gerð er um námsárangur og reglna Lánasjóðs íslenskra námsmanna.
Það er líka mjög mikilvægt að velta því fyrir sér í framhaldi af þessari umræðu hvort það er ekki nauðsynlegt fyrir ríkisstjórnina að íhuga hvort ekki þarf að endurskipuleggja stjórn Lánasjóðs íslenskra námsmanna. Meiri hluti stjórnar Lánasjóðs íslenskra námsmanna er búinn að standa í stöðugu stríði við námsmenn í mjög langan tíma. Aftur og aftur hafa þeir orðið að stefna þessum meiri hluta fyrir dómstóla í landinu eða klaga þá í umboðsmann Alþingis. Ég held að það sé kominn tími til þess, í fullri vinsemd sagt, að hæstv. menntmrh. og fjmrh. sem á fulltrúa í stjórninni líka eins og kunnugt er velti því fyrir sér hvort samskiptin á persónulegum grundvelli hafi ekki verið það erfið að kominn sé tími til að hvíla þau samskipti og skipta þarna um fólk. Mér sýnist að niðurstaðan í þessu máli sýni að það sé fyllilega tímabært. En ég endurtek þakkir mínar til hæstv. menntmrh. fyrir það að ég tel að hann hafi tekið undir aðalósk mína sem var sú að bréf um afturvirkni þessarar kerfisbreytingar fari ekki út og að veturinn í vetur verði þá notaður til að ræða málið ítarlega og komast að sameiginlegri niðurstöðu um það hvernig með þessi mál verður farið.