Veiðileyfagjald

Fimmtudaginn 09. október 1997, kl. 15:30:18 (340)

1997-10-09 15:30:18# 122. lþ. 6.2 fundur 5. mál: #A veiðileyfagjald# þál., Forseti GÁ
[prenta uppsett í dálka] 6. fundur

[15:30]

Forseti (Guðni Ágústsson):

Forseti vill vegna þess að það henti hv. þm. að segja ,,þú`` enn og aftur, lesa 54. gr. þingskapa þar sem segir m.a.:

,,Ræðumaður skal jafnan víkja ræðu sinni til forseta eða fundarins en eigi ávarpa nokkurn einstakan þingmann. Kenna skal þingmann við kjördæmi hans eða nefna hann fullu nafni.``