Íþróttahús við MH

Mánudaginn 13. október 1997, kl. 15:12:02 (373)

1997-10-13 15:12:02# 122. lþ. 7.1 fundur 42#B íþróttahús við MH# (óundirbúin fsp.), menntmrh.
[prenta uppsett í dálka] 7. fundur

[15:12]

Menntamálaráðherra (Björn Bjarnason):

Herra forseti. Í fjárlagafrv. er gert ráð fyrir að verja 15 millj. kr. til framkvæmda við Menntaskólann við Hamrahlíð. Það fé á að renna til að undirbúa framkvæmdir vegna íþróttahússins. Það liggja ekki enn fyrir ljósar hugmyndir um hvernig best verði staðið að því að reisa þetta hús, þá vinnu þarf að vinna. Kannski eru ekki allir á einu máli um hvar húsið á að rísa og hvernig að því verður staðið en úr því verður að skera. En það eru fjármunir í fjárlagafrv. sem ætlaðir eru til þessara framkvæmda.