Lögheimilisbreytingar sjómanna

Mánudaginn 13. október 1997, kl. 15:16:56 (378)

1997-10-13 15:16:56# 122. lþ. 7.1 fundur 43#B lögheimilisbreytingar sjómanna# (óundirbúin fsp.), félmrh.
[prenta uppsett í dálka] 7. fundur

[15:16]

Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson):

Herra forseti. Nú er það svo að lögheimilislögin heyra ekki undir félmrh. heldur undir hæstv. dómsmrh. þannig að hann yrði að hafa forustu um lagabreytingu. En ég tel að málið snerti fjölskylduna eða fjölskyldupólitíkina í landinu og þar af leiðandi gæti verið aðkoma að málinu frá hendi félmrh. En það er dómsmrh. að hafa forgöngu um breytingu á lögum í hans málaflokki. Þessi málaflokkur heyrir formlega undir dómsmrh. eftir því sem ég veit best.