Skýrsla OECD um framlög til menntamála og yfirvofandi kennaraverkfall

Mánudaginn 13. október 1997, kl. 15:24:53 (384)

1997-10-13 15:24:53# 122. lþ. 7.1 fundur 44#B skýrsla OECD um framlög til menntamála og yfirvofandi kennaraverkfall# (óundirbúin fsp.), GGuðbj
[prenta uppsett í dálka] 7. fundur

[15:24]

Guðný Guðbjörnsdóttir:

Virðulegi forseti. Ég hef lesið þetta samkomulag og það kemur fram í því að ef forsendur breytast þá megi taka það upp. Ég tel að nú sé svo alvarlegt ástand í uppsiglingu í þjóðfélaginu og að þessar upplýsingar frá OECD séu það alvarlegar að forsendur séu til þess að taka á þessum málum alveg sérstaklega.