Reykjavíkurflugvöllur

Mánudaginn 13. október 1997, kl. 15:27:29 (387)

1997-10-13 15:27:29# 122. lþ. 7.1 fundur 45#B Reykjavíkurflugvöllur# (óundirbúin fsp.), GHall
[prenta uppsett í dálka] 7. fundur

[15:27]

Guðmundur Hallvarðsson:

Herra forseti. Það var von og vísa hæstv. samgrh. að vera með stutt svar var það ekki vegna þess að um það hefur verið rætt nú alveg síðan þessi skýrsla var gefin út að ráðist yrði í framkvæmdir á Reykjavíkurflugvelli eða þær undirbúnar á árinu 1998. Því tel ég, herra forseti, að það sé algjörlega óviðunandi fyrir flug á Íslandi að ekki skuli vera ráðist í framkvæmdir við Reykjavíkurflugvöll fyrr en fyrirhugað er. Ég vil því beina einni spurningu til hæstv. samgrh.: Mun hann beita sér fyrir því á þessu þingi að sértæk heimild verði veitt af hálfu Alþingis til framkvæmdalána svo hægt verði að hefja framkvæmdir á árinu 1998?