Reykjavíkurflugvöllur

Mánudaginn 13. október 1997, kl. 15:29:24 (389)

1997-10-13 15:29:24# 122. lþ. 7.1 fundur 45#B Reykjavíkurflugvöllur# (óundirbúin fsp.), GHall
[prenta uppsett í dálka] 7. fundur

[15:29]

Guðmundur Hallvarðsson:

Herra forseti. Ég er ekki sammála hæstv. samgrh. um að þetta sé eðlilegur verkmáti. Ég tel að það sé eðlilegur verkmáti að hefjast þegar handa um undirbúning útboðs og gagna þannig að hægt verði að hefja verkframkvæmdir á árinu 1998, síðla árs. Ég fékk ekki svar frá hæstv. samgrh. við þeirri spurningu minni hvort hann mundi beita sér fyrir því að Alþingi veitti sértæka heimild til þess að taka framkvæmdalán svo hægt væri að hefja framkvæmdir við Reykjavíkurflugvöll á næsta ári. Það liggur alveg ljóst fyrir að það er mjög brýnt vegna öryggis flugsamgangna hér við höfuðborgina og hina dreifðu byggð.