Óundirbúin fyrirspurn um flugmálaáætlun

Þriðjudaginn 14. október 1997, kl. 13:33:25 (427)

1997-10-14 13:33:25# 122. lþ. 8.91 fundur 51#B óundirbúin fyrirspurn um flugmálaáætlun# (aths. um störf þingsins), Forseti ÓE
[prenta uppsett í dálka] 8. fundur

[13:33]

Forseti (Ólafur G. Einarsson):

Vegna þessarar fyrirspurnar frá hv. þm. vill forseti segja að í fyrsta lagi getur hann ekki vitað um hvað þingmenn ræða í óundirbúnum fyrirspurnum til ráðherra. Í öðru lagi getur forseti upplýst að í sjálfu sér eru engar skrifaðar reglur til sem leggja hömlur á hvað þingmenn geta óskað upplýsinga um eða hvað þeir upplýsa sjálfir. Forseti ætlar ekki að leggja dóm á það hvort í umræddu tilviki hafi eitthvað verið sagt sem ekki mátti segja eða var ekki við hæfi að segja. Forseti getur ekki svarað þessu öðruvísi.