ÞBack fyrir HG

Miðvikudaginn 15. október 1997, kl. 13:33:18 (496)

1997-10-15 13:33:18# 122. lþ. 9.91 fundur 53#B ÞBack fyrir HG#, Forseti ÓE
[prenta uppsett í dálka] 9. fundur

[13:33]

Forseti (Ólafur G. Einarsson):

Borist hefur svohljóðandi bréf:

,,Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi næstu tvær vikur leyfi ég mér með vísun til 2. mgr. 53. gr. laga um þingsköp Alþingis að óska þess að 1. varaþingmaður Alþb. í Austurlandskjördæmi, Þuríður Backman hjúkrunarfræðingur, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.

Þetta er yður hér með tilkynnt, herra forseti.

Hjörleifur Guttormsson, 4. þm. Austurl.``

Þuríður Backman hefur tekið sæti áður á Alþingi á þessu kjörtímabili og er boðin velkomin til starfa að nýju.