Ögmundur Jónasson:
Hæstv. forseti. Ég vil fagna þeirri ákvörðun ríkisstjórnarinnar að tryggja sjálfstæðan tveggja vikna fæðingarorlofsrétt feðra. Þetta er mjög í anda frv. sem flutt var á síðasta þingi af þeim er hér stendur og hv. þm. Steingrími J. Sigfússyni. Við lítum á þetta sem mjög mikilvægt fyrsta skref til að tryggja sjálfstæðan rétt feðra á þessu sviði.
Ég vil taka undir með fyrirspyrjanda, hv. þm. Svanfríði Jónasdóttur, um nauðsyn þess að tryggt verði að allir búi við sambærilegan rétt að því tilskyldu að réttindin verði færð upp á við, að sjálfsögðu, vegna þess að ríkisstjórnin hefur í sínum gjörðum jafnan reynt að samræma niður á við. En ég vil vekja athygli á einu atriði sérstaklega í tengslum við þetta og það er fjármögnunin vegna þess að hæstv. fjmrh. hefur sagt að þetta eigi ekki að kosta krónu. Hér eru að koma í ljós veikleikar á þeirri nýskipan í launakerfi hins opinbera sem hæstv. fjmrh. hefur beitt sér fyrir og ég vil vekja athygli á þessu atriði sérstaklega.