Tekjuskattur og eignarskattur

Miðvikudaginn 15. október 1997, kl. 15:32:07 (527)

1997-10-15 15:32:07# 122. lþ. 10.4 fundur 3. mál: #A tekjuskattur og eignarskattur# (tekjutenging bótaliða) frv., ÖJ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 10. fundur

[15:32]

Ögmundur Jónasson (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. fyrir upplýsingarnar. Hér hefur komið fram að á ferðinni er alvarlegur ágreiningur á milli ríkisstjórnarflokkanna um störf jaðarskattanefndar. Þingmaðurinn sættir sig ekki við að nefndin hafi verið látin ljúka störfum og ég mun taka þeirri áskorun hans eða við úr stjórnarandstöðunni og beina spurningum um þetta efni til réttra aðila. En það var gott að fá þessar upplýsingar fram.