Upplýsingarit ríkisstjórnarinnar

Mánudaginn 03. nóvember 1997, kl. 15:34:16 (837)

1997-11-03 15:34:16# 122. lþ. 17.1 fundur 61#B upplýsingarit ríkisstjórnarinnar# (óundirbúin fsp.), forsrh.
[prenta uppsett í dálka] 17. fundur

[15:34]

Forsætisráðherra (Davíð Oddsson):

Herra forseti. Það var greint frá því opinberlega þegar þetta rit var kynnt hver kostnaður væri við það. Það var gert á blaðamannafundi. Það hefur sennilega ekki gengið fyrir hv. þm. að fylgjast með fréttum af því upplýsingariti, en sérstaklega var tekið fram að kostnaður væri um 2,5 millj. kr. Ég hygg að flestir þingmenn hafi fengið þær tölur til sín því þeim var ekki í neinu leynt.

Í annan stað er þessi kostnaður færður á lið sem heitir Ráðstöfunarfé ríkisstjórnar.