Flutningur Stýrimanna- og Vélskólans úr Sjómannaskólahúsinu

Mánudaginn 03. nóvember 1997, kl. 15:53:49 (851)

1997-11-03 15:53:49# 122. lþ. 17.1 fundur 63#B flutningur Stýrimanna- og Vélskólans úr Sjómannaskólahúsinu# (óundirbúin fsp.), SJS (um fundarstjórn)
[prenta uppsett í dálka] 17. fundur

[15:53]

Steingrímur J. Sigfússon (um fundarstjórn):

Herra forseti. Ég vek athygli forseta á því að það mál sem hér var tekið upp til umræðu áðan af einum hv. þm. liggur þegar fyrir í fyrirspurn á þskj. 212 og er 203. mál Alþingis þar sem spurt er mjög ítarlega um öll efnisatriði sem hv. þm. gerði að umtalsefni í umræðum um óundirbúna fyrirspurn og reyndar nokkur í viðbót í sjö töluliðum. Ég vek athygli forseta á þessari staðreynd í málinu. Mér er ljóst að það hlýtur að hafa farið fram hjá hv. þm. að svo er en spurningin er þá til hæstv. forseta hvernig fara beri með mál í sambærilegum tilvikum.