Forseti (Ólafur G. Einarsson):
Forseta var kunnugt að þetta mál var á þingskjali en forseti getur ekki vitað nákvæmlega hvað hv. þingmenn ætla að spyrja um í óundirbúnum fyrirspurnum. Forseti veit það ekki frekar en viðkomandi ráðherra þó að hann viti um efni fyrirspurnarinnar rétt áður en hann hefur fund.