Staða aldraðra og öryrkja

Mánudaginn 03. nóvember 1997, kl. 15:59:21 (856)

1997-11-03 15:59:21# 122. lþ. 17.1 fundur 64#B staða aldraðra og öryrkja# (óundirbúin fsp.), heilbrrh.
[prenta uppsett í dálka] 17. fundur

[15:59]

Heilbrigðisráðherra (Ingibjörg Pálmadóttir):

Virðulegi forseti. Eins og kom fram hjá fyrirspyrjanda í seinni ræðu hans erum við ekki að bera saman sömu hluti þannig að það verður að taka með í reikninginn þegar þetta er allt saman lagt saman.

Ég ætla líka að minna hv. þm. á að í fjárlögum fyrir árið 1998 eru almannatryggingabætur hækkaðar verulega og það var líka gert á þessu ári.