Samgönguráðherra (Halldór Blöndal):
Herra forseti. Því miður eru ekki nema fimm mínútur til stefnu en ég mun reyna að ljúka máli mínu innan þess tíma þannig að fullnægjandi mynd verði gefin af því sem um er að ræða.
Þær gjaldskrárbreytingar, sem áttu sér stað og gerð hefur verið rækileg grein fyrir í Morgunblaðinu í dag og ég vék að áðan eins og þær standa, nú lúta að því að lækka erlend símtöl um 22%. Ef horft er til þess að erlend símtöl eru verulegur þáttur af útgjöldum heimilanna, eða 46% af símakostnaði heimilanna, þá sjáum við auðvitað að hér er um verulega kjarabót að ræða. Það er líka alveg ljóst að það er með engum hætti verjandi að hugsa sér að það kosti jafnmikið að tala eina mínútu t.d. til Danmerkur og 51 mínútu innan lands. Það stenst auðvitað ekki. Það var talið nauðsynlegt að breyta þessu.
Það hefur orðið niðurstaðan að Póstur og sími tekur það á sig, sem auðvitað dregur úr arðsemiskröfum. Ég vil minna á að þetta fyrirtæki var kölluð mjólkurkýr hér við umræðurnar og mikill áhugi á því að ekki drægi úr því að Póstur og sími gæti greitt í ríkissjóð. Þær greiðslur hafa aldrei verið meiri en þegar jafnaðarmenn hafa setið í ríkisstjórn.
Ég vil í annan stað minna á að langlínusamtöl hafa verið um 58% --- ég hygg ég hafi mismælt mig þegar ég sagði áðan 46% og bið ég afsökunar á því --- hlutdeild heimilanna af erlendum símtölum úr landinu er 46% og 54% eru fyrirtæki. En samtöl til útlanda eru 28,1% af símaútgjöldum heimilanna, breytir ekki miklu. 15,5% eru útgjöld langlínusímtala og það var fjórum sinnum dýrara að hringja frá Keflavík til Reykjavíkur, frá Vatnsleysuströnd til Reykjavíkur heldur en úr Kjósinni til Reykjavíkur hér áður eða frá Raufarhöfn til Akureyrar svo dæmi séu tekin. Það var talið nauðsynlegt að reyna að samræma þetta. Þegar þessi mál voru til umræðu í ríkisstjórninni var ekki um það að ræða að nokkur talaði um að Póstur og sími ætti að greiða með þessari breytingu, og ekki einn einasti þingmaður mælti með því.
Ég vil í annan stað segja að Póstur og sími hefur verið að búa sig undir það eftir að Póstur og sími hf. var stofnaður að bæta tækni. M.a. verður um næstu áramót tekið upp mjög nákvæmt kostnaðarbókhald og á næsta ári verður innleitt sérstakt fjárhagsupplýsingakerfi sem kostar um 300 millj. kr. Þetta er ný tækni sem komið hefur til landsins á allra síðustu missirum og mun gera Pósti og síma kleift að koma til móts við einstaka hópa, t.d. þá sem eru heyrnarlausir, þannig að þeir geti nýtt sér internetið ódýrar en áður, og þá sem búa við aðra fötlun. Þetta gerir líka kleift að gefa sérstakan afslátt af símtölum sem standa í mjög langan tíma. En einmitt þeir möguleikar sem eru nýir og koma til skjalanna á næsta ári munu gera það mögulegt að koma til móts við internet-notendur og aðra sem nota símann í langan tíma. Við erum að þessu leyti að horfa fram til nýrrar aldar. Í samgrn. er nú einmitt verið að ræða um það hvernig hægt sé að nýta þessa nýju tækni sem best til að koma til móts við netverja í náinni samvinnu við þá. Ég geri mér vonir um að tillögur um það efni geti legið fyrir á fyrstu mánuðum næsta árs.
Ég vil líka segja að þessi nýi möguleiki kemur sér vel fyrir gamalt fólk, þá sem eru einmana og þar fram eftir götunum, eins og þekkist í öðrum löndum. Ég vil segja að ég fagna því að Samkeppnisstofnun mun fara yfir þessi mál til að eyða tortryggni. Ég vil taka undir að þær skýringar sem upphaflega voru gefnar á þeim hækkunum sem ákveðnar höfðu verið af stjórn fyrirtækisins voru ekki fullnægjandi. En auðvitað vita það allir þingmenn, hver einasti, að það er ekki ráðherra að standa fyrir eða skipuleggja kynningar á nýjum ákvörðunum eða nýjum breytingum sem gerðar eru í einstökum fyrirtækjum eða stofnunum.