Nafn þingmanns

Miðvikudaginn 05. nóvember 1997, kl. 13:33:33 (960)

1997-11-05 13:33:33# 122. lþ. 19.93 fundur 79#B nafn þingmanns# (aths. um störf þingsins), samgrh.
[prenta uppsett í dálka] 19. fundur

[13:33]

Samgönguráðherra (Halldór Blöndal):

Herra forseti. Mér varð það á í gær að fara vitlaust með nafn eins hv. þm. og vil biðjast afsökunar á því. Mér var bent á það eftir umræðurnar að það hefði komið fyrir mig fjórum sinnum í ræðu minni. Mér er það algjörlega óskiljanlegt og biðst afsökunar.