Tómas Ingi Olrich:
Virðulegi forseti. Það hefur svolítið komið fram í þessari umræðu gagnrýni á að sjómannamenntun skuli vera dreift um landið allt. Það vill nú svo til að sjávarútvegur er stundaður um allt þetta land og raunar er sjávarútvegur sú atvinnugrein þar sem mest sóknarfæri hafa verið einmitt á landsbyggðinni. Mörg sterkustu sjávarútvegsfyrirtæki landsins eru á landsbyggðinni og því vaknar sú spurning hvort menn ætla að verja þetta mál þannig að óverjandi sé að bjóða upp á sjómannamenntun annars staðar á landinu en í Reykjavík.
Það vill einu sinni svo til að það fer mest eftir því hvernig starfið gengur innan menntastofnana hver aðsókn að þeim er. Þess vegna skiptir meginmáli að stofnanirnar snúi sér að sínu innra starfi til að kalla til sín nemendur. Það hefur gengið vel að reka nám fyrir sjómenn á Dalvík. Það gengur að vísu upp og niður eins og alls staðar en það hefur gengið vel nú í seinni tíð og mér finnst ástæðulaust að snúa þessari umræðu eins og gert var hér af síðasta ræðumanni í þá veru að leggjast gegn því að boðið sé upp á nám alls staðar á landinu.