Fyrirspyrjandi (Tómas Ingi Olrich):
Virðulegi forseti. Ég hef lagt fsp. til sjútvrh. um markaðshlutdeild fyrirtækja sem er svohljóðandi:
,,Hefur ráðherra upplýsingar um markaðshlutdeild tveggja stærstu fyrirtækja landsins í útflutningi sjávarafurða?
Telur ráðherra ástæðu til, með tilliti til markaðshlutdeildar þessara fyrirtækja, að setja lög sem takmarka umsvif og starfsemi þeirra umfram það sem samkeppnislög segja til um?``
Tilefni þessarar fsp. er það að lagt hefur verið fram á Alþingi frv. til laga sem miðar að því að takmarka umsvif útgerðarfyrirtækja. Rökin sem sett eru fram í grg. með þessu frv. eru þau að það stefni í að útgerðarfyrirtæki verði svo umsvifamikil í aflahlutdeildum sínum að þau fái of mikil völd í þjóðfélaginu, öðlist of sterka stöðu gagnvart stjórnvöldum, komi hugsanlega til með að hindra samkeppni og of mikil kvótaeign geti leitt til tilfærslu milli byggða og geti auk þess haft þau áhrif að breyta mynstri innan atvinnugreinarinnar, mynstri í fyrirtækjarekstri. Þá er einnig talið að of mikill tilflutningur kvóta á ákveðin fyrirtæki leiði til þess að fækka mjög smáfyrirtækjum.
Í þessu tilliti hef ég lagt fram fyrirspurnir til nokkurra ráðherra, þar á meðal til hæstv. sjútvrh., sem lúta að því að kalla fram upplýsingar um hver staðan er almennt í atvinnumálum á Íslandi og hversu mikil ástæða er til þess, ef frv. sem hér var getið um áðan sem takmarkar umsvif sjávarútvegsfyrirtækja er réttlætanlegt, að skoða atvinnulífið í heild og velta því fyrir sér hvort hér á Íslandi séu, á ákveðnum sviðum atvinnulífsins, fyrirtæki sem hafa svo sterka markaðshlutdeild að þau geti skapað hættu á öllum þessum sex atriðum sem talið er upp að sjávarútvegsfyrirtækin geti skapað hættu á. Ég held að það sé rétt að fá þessar upplýsingar, ef það er hægt, og nota þær til þess að varpa sérstöku ljósi á umræðuna um frv. til laga um stjórn fiskveiða sem nú hefur verið lagt fram í þinginu.