Flm. (Hjörleifur Guttormsson):
Virðulegur forseti. Hér mæli ég fyrir till. til þál. um að stofna lífsiðfræðiráð. Þetta er mál sem flutt var á síðasta þingi og er endurflutt hér. Það náði ekki að fá efnislega umfjöllun í hv. umhvn. og er það ástæða þess að málið er endurflutt. Fyrir umhvn. liggja eða geta legið er réttara að segja, umsagnir frá síðasta þingi um málið sem munu gagnast nefndinni við vinnu að því. Ég hef því kosið að breyta ekki tillögunni frá síðasta þingi þannig að þau viðhorf sem fram komu hjá umsagnaraðilum endurspegli málið eins og það er hér endurflutt.
Málið fjallar um að fela ríkisstjórninni að koma hið fyrsta á fót lífsiðfræðiráði til að fjalla um siðfræðileg álitaefni sem tengjast erfðabreytingum á lífverum og einræktun og afla til þess nauðsynlegra heimilda á Alþingi. Ráðinu verði ætlað að fylgjast með þróun í líftækni innan lands og erlendis, veita stjórnvöldum ráðgjöf og miðla fræðslu til almennings. Um leið verði endurskoðað núverandi kerfi ráðgefandi nefnda hjá hinu opinbera á þessu sviði og stefnt að einföldun þess og samræmingu.
Einnig verði hið fyrsta komið á fót samstarfsnefnd ráðuneyta sem fari með mál er snerta líftækni og rannsóknir á því sviði, hvort sem um er að ræða menn, dýr, plöntur eða örverur. Nefndin verði m.a. tengiliður lífsiðfræðiráðs við einstök ráðuneyti.
Þetta er efni málsins. Í umsögnum sem umhvn. bárust kemur allvíða fram að umsagnaraðilar telji að athuga þurfi hvort sú nefnd sem sett var á fót með lögum nr. 18/1996, um erfðabreyttar lífverur, geti talist fullnægjandi til að fjalla um þau efni sem tillagan gerir ráð fyrir. Ég sem flm. hef litið svo á að þörf væri á að stofna sérstakt lífsiðfræðiráð sem færi yfir málasviðið í heild og væri stjórnvöldum til ráðuneytis um það. Þetta er auðvitað álitaefni og eitt af því sem hv. umhvn. þarf að fara yfir þegar þetta mál er rætt. Í nágrannalöndum okkar hefur verið komið á fót ráðum sem svara til þess sem hér er lagt til. Má þar líta til allnokkurrar reynslu af starfi þeirra. Málið verður æ brýnna, þ.e. að taka þau flóknu mál sem varða íhlutun í stafróf lífsins, svo notað sé einfalt orðalag, af hálfu manna með rannsóknum og tilraunum, að yfir það verði farið út frá siðrænum gildum því afar brýnt er að á þessum málum sé tekið og sem best fylgst með á þessu sviði. Það er markmiðið með efni þeirrar tillögu sem hér er mælt fyrir.
Ég vænti að hv. umhvn. nái að fara yfir málið og afgreiða það frá sér til þingsins. Ég sé ekki ástæðu til að orðlengja þetta frekar þar sem tillagan er endurflutt.