Markaðshlutdeild fyrirtækja

Miðvikudaginn 12. nóvember 1997, kl. 13:33:30 (1125)

1997-11-12 13:33:30# 122. lþ. 23.1 fundur 210. mál: #A markaðshlutdeild fyrirtækja# (málmbræðsluver) fsp. (til munnl.) frá iðnrh., Fyrirspyrjandi TIO
[prenta uppsett í dálka] 23. fundur

[13:33]

Fyrirspyrjandi (Tómas Ingi Olrich):

Herra forseti. Lagt hefur verið fram á Alþingi frv. til laga um stjórn fiskveiða sem hefur þann tilgang að koma í veg fyrir að aflahlutdeildir safnist í of miklum mæli á einstaka aðila. Í athugasemdum með frv. kemur fram að kvótaeign stærstu fyrirtækjanna er á bilinu 4--5%, að eignaraðild er mjög dreifð og samþjöppun aflahlutdeildar á einstaka aðila hefur ekki verið ýkja hröð sl. ár. Miðað við þessar upplýsingar verður ekki séð að þörf sé á þessu frv. né sérstökum ráðstöfunum til að hindra þróun stærstu útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækjanna á þeirri forsendu að hætta sé á því að í krafti kvótaeignar sinnar fái sjávarútvegsfyrirtæki of mikil völd í þjóðfélaginu og staða þeirra gagnvart stjórnvöldum geti orðið of sterk.

Nauðsynlegt er að kalla fram upplýsingar um stærð og fyrirferð fyrirtækja í öðrum atvinnugreinum til þess að bera megi saman hættu á fákeppni og yfirþyrmandi áhrifum einstakra fyrirtækja á stjórnvöld annars vegar í sjávarútvegi og hins vegar í ýmsum öðrum atvinnugreinum. Með þetta í huga hefur sá sem hér stendur varpað fram nokkrum fyrirspurnum til hæstv. iðnrh. Eru þær hafðar aðskildar vegna þess hvernig fyrirspurnaformið er og fyrsta fyrirspurnin er svohljóðandi:

Hefur ráðherra upplýsingar um markaðshlutdeild tveggja stærstu málmbræðsluvera landsins?

Hver er hlutdeild þeirra í kaupum á orku til orkufreks iðnaðar?

Telur ráðherra ástæðu til, með tilliti til markaðshlutdeildar þessara fyrirtækja, að setja lög sem takmarka umsvif og starfsemi þeirra umfram það sem samkeppnislög segja til um?