Markaðshlutdeild fyrirtækja

Miðvikudaginn 12. nóvember 1997, kl. 13:43:05 (1132)

1997-11-12 13:43:05# 122. lþ. 23.4 fundur 217. mál: #A markaðshlutdeild fyrirtækja# (tímarit) fsp. (til munnl.) frá viðskrh., Fyrirspyrjandi TIO
[prenta uppsett í dálka] 23. fundur

[13:43]

Fyrirspyrjandi (Tómas Ingi Olrich):

Herra forseti. Ég vil beina þeirri fyrirspurn til hæstv. viðskrh. hvort hann hafi upplýsingar um markaðshlutdeild tveggja stærstu fyrirtækja landsins í útgáfu tímarita og þá enn fremur hvort ráðherra telji ástæðu til, með tilliti til markaðshlutdeildar þessara fyrirtækja, að setja lög sem takmarka umsvif og starfsemi þeirra umfram það sem samkeppnislög segja til um?