Markaðshlutdeild fyrirtækja

Miðvikudaginn 12. nóvember 1997, kl. 13:45:59 (1134)

1997-11-12 13:45:59# 122. lþ. 23.4 fundur 217. mál: #A markaðshlutdeild fyrirtækja# (tímarit) fsp. (til munnl.) frá viðskrh., Fyrirspyrjandi TIO
[prenta uppsett í dálka] 23. fundur

[13:45]

Fyrirspyrjandi (Tómas Ingi Olrich):

Herra forseti. Það vekur athygli að ekki er hægt að svara fyrirspurnum mínum að því er varðar daginn í dag og er vitnað í þriggja ára gamla skýrslu. Samkvæmt þeirri skýrslu er þá stærsta fyrirtækið í útgáfu tímarita með 55% markaðshlutdeild samkvæmt veltutölum.