Markaðshlutdeild fyrirtækja

Miðvikudaginn 12. nóvember 1997, kl. 13:48:16 (1137)

1997-11-12 13:48:16# 122. lþ. 23.5 fundur 218. mál: #A markaðshlutdeild fyrirtækja# (dagblaðaútgáfa) fsp. (til munnl.) frá viðskrh., Fyrirspyrjandi TIO
[prenta uppsett í dálka] 23. fundur

[13:48]

Fyrirspyrjandi (Tómas Ingi Olrich):

Herra forseti. Í tengslum við þessar upplýsingar tel ég rétt að geta þess að víða erlendis hefur verið sett löggjöf sem kveður á um með hvaða hætti eignatengsl geta verið milli fjölmiðla og mismunandi gerða fjölmiðla þar sem reynt er að koma í veg fyrir að fjölmiðlar hafi óeðlileg áhrif á skoðanamyndun í viðkomandi ríki.