Markaðshlutdeild fyrirtækja

Miðvikudaginn 12. nóvember 1997, kl. 13:50:47 (1140)

1997-11-12 13:50:47# 122. lþ. 23.7 fundur 220. mál: #A markaðshlutdeild fyrirtækja# (bankastarfsemi) fsp. (til munnl.) frá viðskrh., Fyrirspyrjandi TIO
[prenta uppsett í dálka] 23. fundur

[13:50]

Fyrirspyrjandi (Tómas Ingi Olrich):

Herra forseti. Ég beini eftirfarandi fyrirspurnum til hæstv. viðskrh.:

Hefur ráðherra upplýsingar um markaðshlutdeild þriggja stærstu fyrirtækja landsins í bankastarfsemi?

Telur ráðherra ástæðu til, með tilliti til markaðshlutdeildar þessara fyrirtækja, að setja lög sem takmarka umsvif og starfsemi fyrirtækja í bankastarfsemi umfram það sem samkeppnislög segja til um?