Forsætisráðherra (Davíð Oddsson) (andsvar):
Herra forseti. Ég las ekki upp þá byggðaáætlun sem var samþykkt nokkuð samhljóða hér í þinginu vegna þess að ég gerði ráð fyrir að þingmenn gætu kynnt sér hana ítarlega. En um það hefur verið spurt hvort það sé stefnumið okkar, þingmanna ríkisstjórnar sérstaklega, að halda öllu landinu í byggð. Við vitum vel að það er ekki okkar verkefni eða okkar geta að halda öllu landinu í byggð eins og það er orðað. En ég hygg að langflestir hér inni séu þó þeirrar skoðunar að menn eigi að leita úrræða til þess að skapa þau skilyrði, að kjósi menn að eiga búsetu annars staðar en hér á þessu svæði, þá séu skilyrði með þeim hætti að þeir fari ekki á mis við þá þjónustu sem við almennt, sem Íslendingar, gerum nú kröfu til og geti að öðru leyti búið við svipaðar aðstæður og hér. En við munum aldrei geta ráðið því og eigum ekki að ráða því hvort fólk færir sig um set eða ekki. En við getum haft áhrif á hin almennu skilyrði. Það hefur auðvitað verið gert, sérstaklega með því koma efnahagsmálum almennt í betra horf en lengi hefur verið áður. Það gagnast öllum landsmönnum. Ég var að reyna áðan að færa rök fyrir því sem ég tel mig sjá fyrir hvers vegna þær almennu aðgerðir hafa ekki þegar borið þann ávöxt að stöðva strauminn hingað. Ég held að þau sjónarmið sem ég hafði þar uppi hafi töluvert til síns máls og þess vegna megi búast við því að árangur af almennum aðgerðum, og þeim verkefnum sem Byggðastofnun hefur staðið fyrir, muni skila sér þegar fram í sækir.