Hjúkrunarrými fyrir aldraða í Reykjavík

Mánudaginn 17. nóvember 1997, kl. 15:16:05 (1255)

1997-11-17 15:16:05# 122. lþ. 26.1 fundur 89#B hjúkrunarrými fyrir aldraða í Reykjavík# (óundirbúin fsp.), heilbrrh.
[prenta uppsett í dálka] 26. fundur

[15:16]

Heilbrigðisráðherra (Ingibjörg Pálmadóttir):

Virðulegi forseti. Ég ætla nú ekki að svara þeim dylgjum sem hv. þm. var með varðandi bedda. En ég held að það væri hollt fyrir hv. þm. að fara að Landakoti og sjá aðbúnaðinn þar. Þar er hann til fyrirmyndar. Hér erum við að bæta ástandið sem var afar slæmt þegar við var tekið. Við erum að fjölga hjúkrunarrýmum á þessu svæði.