Íslensk erfðagreining og Gagnalind hf.

Mánudaginn 17. nóvember 1997, kl. 15:18:45 (1257)

1997-11-17 15:18:45# 122. lþ. 26.1 fundur 90#B Íslensk erfðagreining og Gagnalind hf.# (óundirbúin fsp.), heilbrrh.
[prenta uppsett í dálka] 26. fundur

[15:18]

Heilbrigðisráðherra (Ingibjörg Pálmadóttir):

Virðulegi forseti. Árið 1993 gerði heilbrrn. samning við Gagnalind hf. um hugbúnað fyrir heilsugæslustöðvar. Allar götur síðan hefur Gagnalind unnið fyrir heilbrrn. Fyrir skömmu gerði ég viðbótarsamning við Gagnalind. Hugbúnaðurinn sem hefur verið í þróun þennan tíma er nú orðinn fullburða. Gagnalind er hlutafélag og er trúlega á hlutabréfamarkaðnum en það sem skiptir mestu máli í þessu er að persónuupplýsingar eru ekki til sölu og ekki hægt að selja.