Íslensk erfðagreining og Gagnalind hf.

Mánudaginn 17. nóvember 1997, kl. 15:21:35 (1261)

1997-11-17 15:21:35# 122. lþ. 26.1 fundur 90#B Íslensk erfðagreining og Gagnalind hf.# (óundirbúin fsp.), heilbrrh.
[prenta uppsett í dálka] 26. fundur

[15:21]

Heilbrigðisráðherra (Ingibjörg Pálmadóttir):

Virðulegi forseti. Ég ætla að segja það í þriðja skipti að viðkvæmar persónulegar upplýsingar og almennt persónulegar upplýsingar eru ekki til sölu. Gagnalind hf. á ekki þessar persónulegu upplýsingar. Gagnalind hefur séð um kerfið en geymir ekki þessar persónulegu upplýsingar.