Nefnd um smíði nýs varðskips

Mánudaginn 17. nóvember 1997, kl. 15:22:10 (1262)

1997-11-17 15:22:10# 122. lþ. 26.1 fundur 91#B nefnd um smíði nýs varðskips# (óundirbúin fsp.), GHall
[prenta uppsett í dálka] 26. fundur

[15:22]

Guðmundur Hallvarðsson:

Herra forseti. Oft hefur staða Landhelgisgæslunnar verið í umræðunni og aldur þeirra skipa sem landhelgi okkar hafa gætt. Varðskipið Óðinn er 38 ára. Ég flutti þáltill. sem snerti aldur varðskipa árið 1994. Í september 1994 skipaði hæstv. dómsmrh. sérstaka nefnd til að athuga skipakost Landhelgisgæslunnar. Sú nefnd gerði tillögur og skilaði til hæstv. dómsmrh. í mars 1997. Af því tilefni vildi ég spyrja hæstv. dómsmrh. hvað líði skipan nefndar vegna endurnýjunar varðskips eða svokallaðrar byggingarnefndar?