Nefnd um smíði nýs varðskips

Mánudaginn 17. nóvember 1997, kl. 15:23:06 (1263)

1997-11-17 15:23:06# 122. lþ. 26.1 fundur 91#B nefnd um smíði nýs varðskips# (óundirbúin fsp.), dómsmrh.
[prenta uppsett í dálka] 26. fundur

[15:23]

Dómsmálaráðherra (Þorsteinn Pálsson):

Herra forseti. Það er rétt hjá hv. fyrirspyrjanda að fyrr á þess ári skilaði nefnd sem ég skipaði því áliti að nauðsynlegt væri að endurnýja skipakost Landhelgisgæslunnar. Í framhaldi af því var ákveðið að hefja undirbúning að smíði nýs varðskips. Að undanförnu hefur verið unnið að ýmsum frumathugunum á því máli og stefnt hefur verið að því að framkvæmdanefnd sem muni sjá um verkið verði skipuð í þessum mánuði.