Iðnaðarráðherra (Finnur Ingólfsson) (andsvar):
Herra forseti. Það er að vísu alveg rétt að til er hrein orka eða græn orka annars staðar í heiminum en á Íslandi. En á þeim stöðum þar sem um slíkt er að ræða eru kannski ekki sömu skilyrði til uppbyggingar orkufreks iðnaðar og hér á landi. Ef ég hef skilið hv. þm. rétt í ræðu sinni áðan, þá hafði hann það sem markmið og vildi að það markmið gengi fram að losunin yrði á heimsvísu sem allra minnst. Ef við göngum út frá því að við ætlum að halda áfram að lifa hér á landi og annars staðar í heiminum og halda áfram að auka hagvöxt og bæta lífskjör heimsins alls, þá hljótum við líka að ætla að halda áfram að framleiða iðnaðarvörur, m.a. úr áli, þannig að aðalatriðið er að ná þessari heildarniðurstöðu, sem er minnsti útblástur á þessum gróðurhúsaslofttegundum í heiminum og það m.a. með því að nota græna orku og vatnsorkuna til þess.