Framtíðarskipan raforkumála

Fimmtudaginn 20. nóvember 1997, kl. 14:02:14 (1497)

1997-11-20 14:02:14# 122. lþ. 31.2 fundur 227. mál: #A framtíðarskipan raforkumála# þál., SvG (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 31. fundur

[14:02]

Svavar Gestsson (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. iðnrh. fyrir einkar hlý orð í minn garð eins og venjulega af hans hálfu og hef engu við þetta að bæta. Geðvonskan sýndi að hann er rökþrota í þessu máli og það er hans vandamál en ekki mitt.