Úttekt á fjárhagsvanda Háskóla Íslands

Fimmtudaginn 20. nóvember 1997, kl. 14:27:04 (1501)

1997-11-20 14:27:04# 122. lþ. 31.7 fundur 270. mál: #A úttekt á fjárhagsvanda Háskóla Íslands# þál., JóhS (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 31. fundur

[14:27]

Jóhanna Sigurðardóttir (andsvar):

Herra forseti. Ég tek undir efni tillögunnar sem fjallar um fjárhagsvanda Háskóla Íslands. Ég tek einnig undir rökstuðning hv. þm. og þá sveltistefnu sem háskólinn þarf að búa við og hv. þm. lýsti. Þetta eru tímabær orð og þetta var líka tímabær ádrepa hv. þm. Framsfl. á ríkisstjórnina.