Framkvæmd laga um réttindi sjúklinga

Þriðjudaginn 02. desember 1997, kl. 14:01:39 (1527)

1997-12-02 14:01:39# 122. lþ. 32.2 fundur 105#B framkvæmd laga um réttindi sjúklinga# (óundirbúin fsp.), heilbrrh.
[prenta uppsett í dálka] 32. fundur

[14:01]

Heilbrigðisráðherra (Ingibjörg Pálmadóttir):

Virðulegi forseti. Það er verið að auka þjónustuna á öllum sviðum. Það er verið að fjölga hjúkrunarrýmum t.d. Það er verið að undirbúa byggingu barnaspítala. Það er verið að undirbúa byggingu líknardeildar. Það er verið að auka heimahjúkrun. Þetta eru svörin við spurningum hv. þm.