Lögskráning sjómanna

Fimmtudaginn 04. desember 1997, kl. 14:17:53 (1648)

1997-12-04 14:17:53# 122. lþ. 35.4 fundur 289. mál: #A lögskráning sjómanna# (öryggisfræðsla) frv., SJS (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 35. fundur

[14:17]

Steingrímur J. Sigfússon (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin. Ég lýsi yfir stuðningi mínum við þessar hugmyndir og ég vona að hæstv. ráðherra geti hraðað vinnunni að þessu máli þannig að það liggi fyrir, helst fyrir áramót, og þar með verði einnig hægt að taka mið af því hvað fjárveitingar snertir eða fjárhagslegar hliðar málsins, að tryggja með þessum hætti aðstöðu og framtíðaraðbúnað að Slysavarnaskóla sjómanna.