Sameining Kjalarneshrepps og Reykjavíkur

Fimmtudaginn 04. desember 1997, kl. 15:33:57 (1664)

1997-12-04 15:33:57# 122. lþ. 35.2 fundur 287. mál: #A sameining Kjalarneshrepps og Reykjavíkurborgar# frv., félmrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 35. fundur

[15:33]

Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson) (andsvar):

Herra forseti. Það er alveg tvímælalaust rétt hjá hv. 1. þm. Reykn. að þessi niðurstaða liggur ekkert á borðinu. En hún væri mjög eðlileg og skynsamleg og ég hef þá trú á skynseminni að þetta verði niðurstaðan þrátt fyrir að ekki sé búið að ganga frá henni. Hins vegar fannst mér kenna þess í síðustu ræðu hv. 1. þm. Reykn. að hann væri dálítið gefinn fyrir að verja ríkið sitt.