Sighvatur Björgvinsson (andsvar):
Herra forseti. Það var alveg rétt hjá hv. 4. þm. Austurl. að það var stefna og vilji okkar alþýðuflokksmanna að hálendið yrði ein stjórnsýslueining og Eiður Guðnason umhvrh. lagði fram frv. í þá veru fyrir Alþingi. Það er líka rétt hjá hv. 4. þm. Austurl. að það frv. hlaut ekki samþykki því að þingmeirihlutinn var gegn þeirri stefnu sem þar var mótuð. Og það er líka rétt hjá hv. þm. að þáv. umhvrh. og þáv. formaður umhvn. Gunnlaugur Stefánsson alþm. beittu sér fyrir því að reyna að leysa málið þannig að einhver skipulagsstjórn yrði á hálendinu. Þetta er allt saman rétt. Það sem hefur breyst er hins vegar það að með frv. forsrh. um þjóðlendur er ekki bara verið að sigla í höfn einu helsta baráttumáli Alþfl. um þrjá áratugi heldur er líka verið að taka af öll tvímæli um það að hálendið er ein skipulagsleg heild undir stjórn forsrh. og auðvitað fögnum við því þegar við fáum slíkt frv. í hendurnar sem staðfestir þá stefnu sem við alþýðuflokksmenn höfðum og umhvrh. okkar beitti sér fyrir en var ekki samþykkt hér á Alþingi á þeim tíma.
Verði hins vegar þjóðlendufrv. samþykkt, þá verður að sjálfsögðu að breyta öðrum lögum, sveitarstjórnarlögum og skipulagslögum til samræmis við það sem í þjóðlendufrv. segir um að líta beri á hálendið sem stjórnsýslueiningu undir stjórn eins ráðherra.