Jón Kristjánsson (andsvar):
Herra forseti. Hv. þm. svaraði reyndar sinni spurningu sjálf, um hvernig samvinnunefnd um skipulag miðhálendisins hefði verið til komin. Hún kom til vegna þess að menn sættust á það hér í Alþingi með löggjöf í framhaldi af frv. um skipulag miðhálendisins sem var hér í umræðu að setja málið í þennan farveg. (Gripið fram í.) Já, það hefur hv. 4. þm. Austurl. hrakið. En mér heyrist af ræðu hv. þm. að það sé engin trygging fyrir góðum skipulagstillögum að hin stóru sveitarfélög komi þar að, þegar hún lýsir þessum arfavitlausu tillögum hér á þessu svæði. Það virðist víða vera pottur brotinn. Hins vegar er ég ekki að segja með þessu að almenningur eigi ekki að hafa áhrif á skipulagið. Það á að tryggja að almenningur hafi þau. En að vantreysta fulltrúum héraðsnefnda í kringum allt land, bæði frá dreifbýli og þéttbýli til þess að leggja tillögurnar fyrir þjóðina er málflutningur sem ég skil ekki.