Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson) (andsvar):
Herra forseti. Varðandi þessa gagnrýni vil ég segja þetta: Þriggja ára áætlun er fögur áætlun og gott markmið. En það er ekkert endilega víst að það sé svo mikið að marka áætlun sem er gerð þrjú ár fram í tímann. Við vitum báðir hvernig fór með fimm ára áætlanir í Sovét og ég tala nú ekki um á verðbólgutímum sem sem betur fer eru nú að fjarlægjast okkur. Hvaða gagn hefði verið að þriggja ára áætlun í fjárreiðum sveitarfélaga þá?
Ég get viðurkennt að þarna hefði kannski mátt ganga lengra en við höfum gert.
Varðandi það að skila reikningum, þá höfum við gengið ríkt eftir því að sveitarfélögin hafi skilað reikningum. Það hefur hins vegar ekki gengið endilega andskotalaust því að sum sveitarfélög hafa borið því við að þau væru hjá endurskoðandanum og bókhaldararnir væru í önnum og það hefur verið trassagangur á þessu hjá einstöku sveitarfélagi og við höfum gripið til þess að hóta því og framkvæma tímabundið, að stöðva framlög úr jöfnunarsjóði. Þá hafa þau nú venjulega druslað frá sér reikningunum.
Hins vegar höfum við ekki tækifæri, segja lögfræðingar ráðuneytisins mér, að grípa fram fyrir hendur sveitarfélaga ef þau gefa sig ekki upp sjálf eða leita ásjár ráðuneytisins. Samkvæmt gildandi lögum er reiknað með því að sveitarfélögin leiti ásjár ráðuneytisins, ráðuneytið hafi ekki frumkvæðið. Hitt get ég viðurkennt að er rétt hjá hv. þm. að Samband ísl. sveitarfélaga er mjög metnaðarfullt fyrir hönd sveitarfélaganna í landinu og vill leggja vinnu í að reyna að hjálpa sveitarfélögunum til þess að ekki komi til þess að ráðuneytið fari að taka af þeim fjárráðin.