Sveitarstjórnarlög

Föstudaginn 05. desember 1997, kl. 18:50:40 (1810)

1997-12-05 18:50:40# 122. lþ. 36.13 fundur 288. mál: #A sveitarstjórnarlög# (heildarlög) frv., félmrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 36. fundur

[18:50]

Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson) (andsvar):

Herra forseti. Ég hygg að það sé alls ekki af mínum völdum sem hv. þm. Ólafur Örn Haraldsson lagði upp í sína löngu ferð. Ég held að það hafi verið af einhverri annarri innri þrá sem hann lagði í þá ferð. Ég geri ráð fyrir því að við frekari meðferð málsins komi skýr afstaða þessara þingmanna í ljós og ég sannarlega vona það að þeir styðji þetta ágæta mál.